Stutt og skemmtilegt námskeið í rísóprentun
Þann 30. maí hefst stutt og hnitmiðað námskeið í rísóprentun í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Þátttakendur eru beðnir um að koma með teikningar, ljósmyndir og önnur tvívíð verk sem þeir vilja nota sem grunn að myndum til að prenta. Að mestu verður þó unnið með það sem þátttakendur búa til á staðnum.
Fyrsta daginn verður prentvélin og tæknin kynnt til sögunnar, fjölmörg dæmi um rísóprent sýnd og þátttakendur prenta einföld verk til að öðlast skilning á ferlinu. Næstu daga verða unnin fjölbreytt verkefni að stærð, umfangi og fjölda lita. Sum þeirra verða ákveðin og leidd af kennara, önnur að frumkvæði þátttakenda sjálfra. Tilraunamennska, opinn hugur og sveigjanleiki leiða vinnuna áfram.
Námskeiðið stendur yfir 30. maí -2. júní. Kennt er kl. 17.00-20.15 alla daga á þessu tímabili.
Kennari er Bjarni Hinriksson teiknari og myndasagnahöfundur.
Námskeið skólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Skráning stendur yfir á www.mir.is.