Tískusýning LHÍ í beinu streymi í kvöld á Vísir.is
Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun 2020 við Listaháskóla Íslands fer fram í kvöld, 1. september klukkan 19:30 með mjög óvenjulegum hætti. Á tískusýningunni sjálfri verða engir gestir vegna hertra takmarkana í ljósi Covid-19, heldur mun Vísir streyma henni beint þar sem hægt verður að horfa.
Þá mun afrakstur tískusýningarinnar, bæði upptaka af sýningunni og allur fatnaðurinn, vera sýndur á Gerðarsafni í Kópavogi frá og með klukkan 19:00 fimmtudaginn 3. september þar sem útskriftarsýning hönnunar- og arkitektúrdeildar Fjörtíu skynfæri fer fram. Sýningin stendur til 13. september og er aðgangur ókeypis.
Þrír nemendur útskrifast úr fatahönnun frá Listaháskólanum þetta árið, en þær eru Sædís Ýr Jónasdóttir, Birgitta Björt Björnsdóttir og Isabella Lopez Molina.
Leiðbeinendur lokaverkefna voru Linda Björg Árnadóttir, Cédric Rivrain, Anna Clausen, Anita Hirlekar og Soffía Dröfn Marteinsdóttir. Sýningarstjórn er í höndum Lindu Bjargar Árnadóttur.
Fjörutíu skynfæri er heiti útskriftarsýningar nemenda í hönnun og arkitektúr við Listaháskóla Íslands.
Sýningin opnar í Gerðarsafni, Kópavogi sunnudaginn 30. ágúst 2020 og verður aðgangur á sýninguna ókeypis. Sýningin stendur til 13. september.
*
*
Forty Senses is the title of the Graduation Show of students of Design and Architecture in 2020.
The exhibition opens at Gerðarsafn museum in Kópavogur on Sunday the 30th of August 2020 at 10:00 and stays open until the 13th of September. Free admission.