Tölum um hringrásarhagkerfið! Hvernig getum við auðveldað hringrás í byggingariðnaði á Íslandi?
Tölum um hringrásarhagkerfið! Hvernig getum við auðveldað hringrás í byggingariðnaði á Íslandi? Ef þú vilt hafa áhrif á framtíð hringrásar í byggingariðnaðinum, taktu þátt í viðburði í Grósku (Fenjamýri) þann 28. febrúar kl 13.00 - 15.30. Öll velkomin en skráning á viðburðinn fer fram hér
Eftir samræður við hagaðila vitum við að það eru fjölmargar aðgerðir sem hægt er að fara í til að auðvelda innleiðingu hringrásarhagkerfisins í íslenskan byggingariðnað.
En hvaða aðgerðum ætti að forgangsraða?
Hvað eiga opinberir aðilar að leggja áherslu á til að ýta undir innleiðinguna?
Við höfum tekið saman mögulegar aðgerðir og viljum nú heyra frá þér um hugsanleg áhrif þeirra og hagkvæmni og hvað við getum gert öðruvísi til að þær virki. Aðgerðunum er skipt í þrjá flokka:
- Bætt byggingarhönnun
- Rétt skráning á umhverfisáhrifum nýbygginga og endurbóta
- Draga úr áhættu og bæta hagkvæmni hringrásarverkefna
Í seinnihluta viðburðarins verða þátttakendur beðnir um að svara því hvaða starfsemi, sem miðar að því að auðvelda hringrásarframkvæmdir, Norræna ráðherranefndin ætti að leggja áherslu á. Einnig er þeim boðið að svara spurningunni: hvað ættu Norðurlöndin að beita sér fyrir á evrópskum vettvangi?
Seinasti hálftíminn verður nýttur í tengslamyndun með léttum veitingum.
Hugmyndum þínum verður deilt með íslenskum stjórnvöldum og Norrænu Ráðherranefndinni, og því getur þú haft áhrif á mótun framtíðarstefnu í þessum málaflokki.
Viðburður skipulagður af Grænni byggð og Hringvangi. Samstarfsaðilar eru Arkitektafélag Íslands og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.
Dagskrá:
13:00-13:15 Upphafsorð - Katarzyna Jagodzińska verkefnastjóri hjá Grænni byggð
13:15-14:00 I hluti - Umræður um aðgerðir
14:00-14:15 Kaffipása
14:15-14:50 II hluti - Umræður um áherslur Norðurlandaráðs
14:50-15:00 - Lokaorð
15:00-15:30 - Tengslamyndum og léttar veitingar