VARMA opnar verslun í samstarfi við hönnuði á Skólavörðustíg
Íslenska framleiðslufyrirtækið VARMA opnar verslun á Skólavörðustíg 4a með vörum frá hönnuðum sem eiga það sameiginlegt að framleiða vörur sínar í verksmiðju VARMA en það eru vörumerkin MAGNEA og nýja línan hennar Made in Reykjavík, Vík Prjónsdóttir, AD, Margrethe Odgaard fyrir Epal og Hullupullur.
Verslunin er hönnuð af Baldri Helga Snorrasyni, arkitekt. Fyrirtækið Varma er staðsett í Reykjavík og í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að aðalhráefni þeirra og undirstaða sé íslenska ullin.
„Íslenska ullin, hefur þróast í 1100 ár í köldu og norðlægu loftslagi og býr þess vegna yfir einstökum eiginleikum. Hún er létt og heldur einstaklega vel hita, andar vel og hrindir frá sér vatni. Ullin var lengi vel ein aðal útflutningsvara Íslendinga og það er okkur mikill heiður að standa vörð um söguna, þetta einstaka hráefni og íslenska framleiðslu.
Framleiðsluferlið við gerð ullarbands er eins vistvænt og mögulegt er. Eingöngu náttúrulegar uppsprettur eins og hreint vatn og vatnsgufa úr jarðvarma eru notaðar sem orkugjafar við framleiðslu íslenska ullarbandsins en sauðkindin sjálf, sem gefur af sér ullina, er frjáls á beit í haga á sumrin og nærist einkum á grasi sem vex á ósnortnu landi. Þegar ullin er þvegin er notkun kemískra efna og hreinsiefna haldið í algjöru lágmarki til að tryggja viðhald náttúrlegrar fitu og að ullin verði hlý, létt og vatnsþolin eins og hún er frá náttúrunnar hendi. Við vinnum engu að síður stöðugt í því að bæta áferð og mýkt ullarinnar án þess að tapa því sem ullin stendur fyrir.“
Síðastliðin ár hefur VARMA unnið að því að þróa nýtt íslenskt lambsullarband sem er mýkra en það sem þau hafa áður unnið með.
Í nýju versluninni á Skólavörðustíg verða til sölu vörur frá hönnuðum sem eiga það sameiginlegt að framleiða vörur sínar í verksmiðju VARMA en það eru vörumerkin MAGNEA og nýja línan hennar Made in Reykjavík, Vík Prjónsdóttir, AD, Margrethe Odgaard fyrir Epal og Hullupullur.
MAGNEA
Magnea kynnti nú fyrir stuttu nýju línuna sína Made in Reykjavík sem er alfarið búin til á Íslandi og úr íslenskri ull. MAGNEA hefur getið sér gott orð fyrir að nota íslensku ullina á nýstárlegan hátt og opnað augu margra fyrir möguleikunum í prjóni. Nýja línan hennar af yfirhöfnun er virkilega spennandi og hefur fengið góðar viðtökur.
VÍK PRJÓNSDÓTTIR
Merkið er ákveðinn frumkvöðill í því að nota íslenska ull í hönnunarvörur. Árið 2005 kom merkið með nýja nálgun og minntu á möguleikana og verðmætin sem fólgin eru í ullinni. Treflarnir þeirra, Verndarhendur og Vængir slógu rækilega í gegn.
MARGRETHE ODGAARD
Margrethe er danskur textíl hönnuður sem unnið hefur fyrir fyrirtæki á borð við Apple, Montana, HAY, Kvadrat, MUUTO, IKEA ofl. Henni þykir mjög vænt um íslensku ullina og hannaði fyrir Epal teppin BRYNJA sem eru hlý og mjúk teppi þar sem litagleðin fær að njóta sín. Margrethe fékk árið 2016 hin virtu Söderberg verðlaun.
AD
Er hugarfóstur fatahönnuðarins og jógakennarans Sigrúnar Höllu Unnarsdóttur. Hún hefur síðastliðin ár verið með annan fótinn í verksmiðju VARMA og hannað og framleitt kápur, peysur og kjóla úr svokölluðum dead-stock hráefni en einfaldleiki og sjálfbærni er leiðarljós vörumerkisins. AD verður með peysur og trefla úr nýja íslenska lambsullarbandinu í pop up verslun VARMA.
HULLUPULLUR
Eru fyrstu íslensku hugleiðslupúðarnir. Þeir eru prjónaðir úr íslenskri ull, saumaðir á saumaverkstæði Írisar og fylltir með lífrænu byggi frá Vallanesi. Virkilega flottur valkostur fyrir jóga- og hugleiðslu iðkendur. Púðarnir eru hannaðir af Áskeli Jónssyni og Arnóri Sigurgeiri Þrastarsyni.
Ueli
Danskt arkitektar- og hönnunarstúdíó stofnað af Ulrike Marie Steen. Ueli leitast við að vinna með staðbundin hráefni og framleiðendur ásamt því að vinna í sögu og menningarlegu samhengi. Að þessu sinni eru Ueli að færa upplifun af íslenskri náttúru og áferð hennar í nýtt samhengi og útkoman eru falleg teppi sem bera nafnið Mótíf, Landscape memoir.