Þórunn Árnadóttir
Verk Þórunnar spanna vítt og fjölbreytt svið hönnunar, drifin áfram af forvitni, tilraunagleði og áhuga á menningu, hefðum, efnum og aðferðum. Hún vinnur sem sjálfstætt starfandi hönnuður í Reykjavík, og er þar að auki aðalhönnuður og stofnandi alþjóðlega hönnunarmerkisins 54Celsius, ásamt Dan Koval.
Þórunn hefur margra ára reynslu af því að vinna með stórum sem smáum fyrirtækjum og þekkir ítarlega ferlið við að hanna vöru frá hugmynd, framleiðslu og markaðssetningu.