Dennis Davíð Jóhannesson / ARKHD
Dennis lauk MArch námi við University of Strathclyde í Glasgow, Skotlandi. Hann rekur stofuna ARKHD-Arkitektar Hjördís & Dennis ásamt Hjördísi Sigurgísladóttur. Þau hafa unnið til verðlauna m.a. um Sendiherrabústað Íslands í Berlín, viðbyggingu við Laugarnesskóla í Reykjavík og lítið garðhús í Alþjóðlega Sýningarverkefninu “Kolonihaven The International Challenge”. Þau eru höfundar bókarinnar Straumar frá Bretlandseyjum-Rætur íslenskrar byggingarlistar sem kom út 2021.
Sendiherrabústaður Íslands í Berlín - 1. verðlaunatillaga í samkeppni 2003.
Viðbygging við Laugarnesskóla í Reykjavík - 1. verðlaunatillaga í samkeppni 2003.
Bókin "Straumar frá Bretlandseyjum - Rætur íslenskrar byggingarlistar" kom út í desember 2021. Höfundar og útgefendur eru ARKHD-Arkitektar Hjördís & Dennis. Bókin fæst í bókabúðum.