Ásmundarsalur óskar eftir tillögum að sýningarhaldi 2022
Opið er fyrir umsóknir um sýningarhald í Ásmundarsal 2022. Óskað er eftir tillögum að sýningum, viðburðum eða uppákomum sem fanga fjölbreytileika listarinnar. Einnig er óskað eftir umsóknum fyrir vinnustofu listamanns í Gunnfríðargryfju.
Umsóknarfrestur er til og með 6. september, en sótt er um með því að smella hér.
Allar spurningar um umsóknarferlið berast á asmundarsalur@asmundarsalur.is
Ásmundarsalur er sjálfstætt starfandi sýningarsalur sem leggur til aðstöðu og vinnustofu fyrir listamenn í miðbæ Reykjavíkur. Nánari upplýsingar á heimasíðu Ásmundarsalar.