Barbie fer á Hönnunarsafnið I opnun á Safnanótt
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/Z6PftJbqstJ9-Rnc_Barbiesy%CC%81ningho%CC%88nnunarsafn_1600x900.png?auto=format,compress&rect=0,0,1600,900&w=1620&h=911)
Á Safnanótt, föstudaginn 7. febrúar kl. 20:00 opnar sýningin Barbie fer á Hönnunarsafnið.
Barbie er nýjasti gesturinn á fastri sýningu safnsins Hönnunarsafnið sem heimili, yfirlitssýningu muna úr safneign Hönnunarsafnsins sem settir eru fram innan grunnmyndar af heimili.
Sem börn lærum við í gegnum leik og fyrir mörg okkar var heimili Barbie það fyrsta sem við sköpuðum og innréttuðum. Leikurinn sjálfur hófst með því að velja rétta kjólinn og réttu fylgihlutina svo Barbie gæti leikið sitt hlutverk – fötin sköpuðu dúkkuna.
Barbie hefur gert sig heimakomna í öllum rýmum sýningarinnar – íklædd sérsaumuðum fatnaði eftir fjölbreyttan hóp íslenskra fatahönnuða – og minnir okkur á að við erum aldrei of gömul til að leika okkur. Það verður auðvitað mikið stuð í safninu þegar Barbie mætir á Safnanótt, Ljótikór flytur lög eftir Spilverk Þjóðanna og framhaldinu leiðir Sigga Soffía dans í smiðjunni.
Fatahönnuðirnir sem taka þátt eru:
Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir fyrir Kormák og Skjöld
Sýningarstjóri: Hera Guðmundsdóttir
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/Z6R38pbqstJ9-SRl_Do%CC%88nsumme%C3%B0SigguSoffiu.jpg?auto=format,compress)
Dönsum með Siggu Soffíu
Sigga Soffía og DJ Ívar Pétur bjóða upp á gott stuð í smiðjunni á Safnanótt í kjölfarið á opnun á sýningunni Barbie fer á Hönnunarsafnið.