Dialogue on Design in Nature - Noregur
Ættu hönnuðir að líta á náttúruna sem viðskiptavin sinn?
Anna María Bogadóttir, arkitekt, stýrði nýlega samtölum um hönnun í norrænni náttúru í sendiráðum Íslands í Helsinki, Osló, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Sendiráðin héldu hvert um sig sérstakan viðburð í aðdraganda HönnunarMars, sem fer fram í Reykjavík 4. til 8. maí nk. Anna María fékk til liðs við sig hönnuði, arkitekta og hagsmunaaðila, einn frá Íslandi og einn fulltrúa frá viðeigandi landi, til þess að ræða hlutverk hönnunar í tengslum við sjálfbæra ferðamennsku á Norðurlöndunum. Samtölin eru hluti af verkefninu Hönnun í norrænni náttúru, sem Anna María leiðir fyrir hönd Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, í samstarfi við norrænan stofnanir og sérfræðinga.
Samtölin koma nú út í fjögurra þátta hlaðvarpsseríu sem allir geta hlustað á, Dialogue on Design in Nature. Hlaðvörpin eru á ensku.
Er hægt að hanna samband okkar við náttúruna? Hvernig ýtir hönnun undir og styrkir tengsl okkar við náttúruna? Þetta eru meðal spurninga sem verkefnið Hönnun í norrænni náttúru varpar ljósi á. Verkefnið er hluti af formennskuverkefni Íslands í Norrænu ráðherranefndinni og snýr að stærra framtaki sem fjallar um sjálfbæran ferðamennsku á Norðurlöndunum. Með völdum verkefnum er varpað ljósi á fjölbreyttar hönnunarlausnir sem ýta undir verndun náttúrunnar og hvetja til ábyrgðar í umgengni við náttúruna. Verkefnin voru valin með því að skoða söguna, staðbundnar hönnunarhefðir og reynt að sjá fyrir möguleika framtíðarinnar sem liggja í nýrri tækni, samstarfi og nýsköpun.
Hlaðvörpin voru tekin upp í bústöðum sendiherra Íslands á Norðurlöndunum í samstarfi við sendiráðin, Íslandsstofu og norræna samstarfsaðila verkefnisins.
Þátttakendur í samtali í Sendiráði Íslands í Noregi voru:
Vilde Braanaas vinnur að samskiptum og viðskiptaþróun hjá 3RW arkitektum, en hún gekk til liðs við stofuna í nóvember árið 2018 til þess að styrkja samskiptateymi hennar. Hún er með meistaragráðu í grafískri hönnun frá Háskólanum í Bergen. Vilde vann í nokkur ár við samskipti, sölu og markaðssetningu þegar hún tók við stjórn sögufrægs hótels og ferðamannastaðar á vesturstönd Noregs. Árin 2017 til 2018 vann hún, í samstarfi við aðra, að hönnun sýningar utandyra um norskt fiskeldi í Skjerjehamn.
Dagur Eggertsson er meðstofnandi Rintala Eggertsson Architects , sem er margverðlaunuð arkitektastofa í Noregi sem einblínir á húsgagnahönnun, list í almannarýmum, arkitektúr og borgarskipulag. Dagur og meðeigendur hans á Rintala Eggertsson Architects lærðu hjá Johani Pallasmaa í Helsinki og eru undir áhrifum af fyrirbærafræðilegum og þverfaglegum hugmyndum hans. Verk Rintala Eggertsson Architects hafa verið sýnd á Maxxi safninu í Róm, Victoria & Albert safninu í London, Listasafninu í Kína og sem hluti af verkefninu Corte Del Dorte á Feneyjatvíæringnum árið 2018. Stofan hefur unnið til fjölda virtra verðlauna undanfarin ár, m.a. The Global Award for Sustainable Architecture, Wan 21 for 21 verðlaunin, Architizer A+ verðlaunin, Travel & Leisure verðlaunin, Amerísku arkitektaverðlaunin og Alþjóðlegu arkitektaverðlaunin.
Stjórnendur:
Anna María Bogadóttir, arkitekt og menningarfræðingur, leggur áherslu á menningar- og félagslegar hliðar arkitektúr og vinnur með arf, frásagnir og miðlun sem umbreytandi afl í byggðu umhverfi. Hún er stofnandi Úrbanistan sem fæst við fjölbreytt hönnunar-, varðveislu-, og skipulagsverkefni auk þess að stunda útgáfu, sýninga- og kvikmyndagerð er snýr að eðli og umbreytingu manngerðs umhverfis. Anna María hefur mikla reynslu af stefnumótandi hönnun á landsvísu og alþjóðlegum vettvangi. Hún leiðir verkefnið Hönnun í norrænni náttúru fyrir hönd Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Anna er lektor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands.
KNUT BANG er yfirráðgjafi hönnunar hjá DOGA, Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs í Noregi. Hann er lærður vöruhönnuður og grafískur hönnuður frá Art Center College of Design og hefur yfir 25 ára reynslu af hönnunarstörfum, bæði í Noregi og á alþjóðlegum vettvangi. Sérsvið hans hans er að nota hönnun til þess að leysa flókin verkefni og nýtir hann þá þekkingu sérstaklega þegar kemur að verkefnum sem tengjast borgar- og byggðaþróun. Hjá DOGA vinnur hann við ráðgjöf fyrirtækja um stefnumótandi notkun hönnunar og sérhæfir sig í að nota hönnun til að leysa flókin vandamál. Knut vinnur með hönnun og sjálfbærni í gegnum Framtanker, Olso Manifesto og viðskiptanet fyrir grænan vöxt. Hann lauk sjálfbæru leiðtoganámi við Harvard háskóla.