Dvergsreitur tilnefndur sem staður ársins - Hönnunarverðlaun Íslands 2023
Dvergsreitur eftir arkitektastofurnar KRADS og TRÍPÓLÍ, ásamt Landmótun, er tilnefnt sem staður ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2023.
Rökstuðningur dómnefndar:
Dvergsreitur er blönduð byggð í hjarta Hafnarfjarðar sem nýverið var lokið við byggingu á. Reiturinn er höfundum sínum, verkkaupa og sveitarfélaginu, til mikils sóma og þar er þétting byggðar vel heppnuð. Í verkefninu er fallega unnið með umfang og form nærliggjandi húsa og haganlega sköpuð rými eru á milli bygginganna, þrátt fyrir mikinn þéttleika. Efnisval er nútímalegt, en vísar í nærliggjandi hús og minnkar sýnilega stærðarskölun með markvissri notkun breytileika í efnisvali. Þegar betur er að gáð er leikur að formum húsanna og jafnvel árekstur, sem gefur þeim kæruleysislegt, ef ekki hreinlega gamansamt yfirbragð.
Áður stóðu verksmiðjuhús Dvergsins á reitnum. Lögð var áhersla á að nýbyggingar á lóðinni væru hannaðar með þeim hætti að þær féllu sem best að fíngerðara útliti nærliggjandi byggðar. Markmið hönnunarinnar var að skapa eins konar þorpsanda, ramma fyrir hlýlegt mannlíf, sem bæði íbúar sem hafa eigið viðverusvæði í skjólgóðum húsagarði fjær götunum og gestir sem sækja verslun og þjónustu á jarðhæðunum, geta notið.
Um:
KRADS arkitektastofa er með aðsetur á Íslandi og Danmörku, leidd af arkitektunum Kristjáni Erni Kjartanssyni og Kristjáni Eggertssyni. TRÍPÓLÍ arkitektastofa var stofnuð árið 2012 og eru eigendur hennar arkitektarnir Andri Gunnar Lyngberg Andrésson og Guðni Valberg. Landmótun er teiknistofa landslagsarkitekta og skipulagsfræðinga, stofnuð 1994 og með aðsetur í Kópavogi.
Verðlaunaafhending Hönnunarverðlauna Íslands 2023 fer fram í Grósku þann 9. nóvember næstkomandi ásamt samtali því tengdu. Taktu daginn frá!
Fylgstu með næstu daga er við tilkynnum tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2023.
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Þau verða veitt í tíunda sinn í ár (2023) og í tilefni af því hefur verðlaunaflokkum verið fjölgað í þrjá undir heitunum Verk // Staður // Vara.
Dómnefnd tilnefnir þrjú verkefni í hverjum flokki og af þeim hlýtur einn sigurvegari í hverjum flokki Hönnunarverðlaun Íslands 2023 sem eru hvor tveggja heiðurs- og peningaverðlaun. Auk þess verður veitt viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun og Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands.
Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.