Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir og Hera Guðmundsdóttir
sigurvegarar í samkeppni Kormáks og Skjaldar
Tillögur þeirra Aðeins það bezta fyrir ferðalagið: Nytjahlutir Kormáks og Skjaldar úr íslensku tvídi eru varanleg eign og Hálendismeyjar og borgardætur velja íslenska tvídið frá Kormáki og Skildi hlutu hæstu einkunn frá dómnefnd í hönnunar- og hugmyndasamkeppni um nýjar vörur hannaðar úr íslensku tvídi og var tilkynnt á sýningu þeirra á HönnunarMars.
Fjölmargar mjög góðar og vel unnar innsendingar bárust og var dómnefnd vandi að höndum að velja vinningshafa. Gæði innsendinga endurspeglar þörfina fyrir aukin tækifæri á sviði fatahönnunar.
„Það er okkur hjá Kormáki og Skildi mikil ánægja að sjá frábæra þátttöku í hönnunarsamkeppni um notkun á Íslenska Tweedinu í fatnað og nytjamuni. Það er greinilegt að Tvítið okkar höfðar til íslenskra hönnuða og við þökkum góð viðbrögð,“ segir Gunni Hilmarsson, formaður dómnefndar, yfirhönnuður og framkvæmdastjóri hjá Kormáki og Skildi.
Kallað var eftir nýjum hugmyndum um hönnun, fatnaðar eða nytjahluta úr íslenska tvídinu.
Fyrstu verðlaun hljóta fatahönnuðirnir Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir og Hera Guðmundsdóttir fyrir kvenlínu og línu nytjahluta úr íslenska Tweedinu og hljóta þær 500.000 kr. í verðlaun, 250.000 kr. frá Kormáki & Skildi og 250.000 kr. frá Ístex sem er styrktaraðili.
Í umsögn dómnefndar kemur fram:
„Tillögurnar eiga það sameiginlegt að vera faglegar þar sem nálgun hönnunar og notkun Tvíd efnisins var afar ólíkt, frumlegt og spennandi. Einnig vakti það athygli dómnefndar hversu vel unnar þær voru og greinilegt að mikil vinna lá að baki verkefnanna. Það er gaman að sjá ólíka hönnuði vinna með þetta einstaka hráefni. “
Að auki hljóta tillögur fjögurra hönnuða sérstaka viðurkenningu dómnefndar fyrir frábærar hugmyndir sem allar eru áhugaverðar og með mjög ólíka nálgun.
Þau hljóta 50.000 kr. gjafabréf í verslun Kormáks & Skjaldar.
Það eru hönnuðurnir
- Vera Þórðardóttir
- Valdís Steinarsdóttir
- Eiríkur Erlingsson
- Björg Ingadóttir
Dómnefnd skipuðu:
- Gunnar Hilmarsson, hönnuður, fulltrúi Kormáks & Skjaldar
- Helga Ólafsdóttir, hönnuður, stjórnandi HönnunarMars, fulltrúi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
- Anna Þórunn Hauksdóttir, vöruhönnuður, fulltrúi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju!