Kynningarfundur - Grænt húsnæði framtíðarinnar
Fimmtudaginn 16. desember kl. 12.00 verður haldinn opinn kynningarfundur fyrir félagsmenn AÍ á verkefninu Grænt húsnæði framtíðarinnar. Verkefni, sem er leitt af Reykjavíkurborg, hefur það að markmiði að styðja við uppbyggingu á vistvænni byggingum þar sem lágt kolefnisspor er haft að leiðarljósi í gegnum allt þróunar-, hönnunar- og byggingarferlið. Verkefnastjórar hjá Reykjavíkurborg Hilmar Hildar Magnúsarson og Hulda Hallgrímsdóttir kynna verkefnið. Fundurinn verður fjarfundur.
Húsnæðismál eru án efa eitt mikilvægasta verkefni samtímans en mikil og nauðsynleg uppbygging íbúðarhúsnæðis skilur á sama tíma eftir sig djúpt kolefnisfótspor. Reykjavíkurborg hefur því efnt til samkeppni um uppbyggingu á grænu húsnæði framtíðarinnar þar sem boðnar eru fram fimm lóðir í borginni. Hægt verður að spyrja spurninga að kynningu lokinni.
Hulda og Hilmar munu þar að auki kynna SPARCS sem er stórt orkuskipta- og loftslagsverkefni styrkt af ESB sem borgin er þátttakandi í ásamt sex öðrum borgum. Verkefnið stuðlar að samvinnu borga í Evrópu í leit að nýjum og betri lausnum með það fyrir augum að umbreyta borgum í sjálfbær, kolefnishlutlaus vistkerfi sem leiða til bættra lífskjara íbúa.
Í áframhaldandi þróun á báðum verkefnum er þörf á góðu og uppbyggilegu samtali við arkitekta og aðra hagaðila og er hádegisfundurinn liður í að styrkja það samtal.
Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur um Grænt hús framtíðarinnar hefur verið framlengdur til 31. janúar 2022. Neðst á heimasíðu verkefnisins má finna svar við þeim spurningum sem hafa borist hingað til.