- English
- Íslenska
HönnunarMars 2023 opnar með pompi og pragt
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/1debdeb6-22df-49da-86bc-9900ee061417_20x30cm+23.05.03_W8A0514.jpg?auto=compress,format&rect=0,0,3543,2362&w=1620&h=1080)
HönnunarMars var opnuð með formlegum hætti í Hörpu í gær, 3. maí, þar sem hátíðin var sett af Lilju D. Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra og Höllu Helgadóttur, framkvæmdastjóra Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
Fjölmennt var á opnunin og bjartsýni og gleði réð ríkjum þar sem hátíðin var sett fimmtánda árið í röð. Halldór Eldjárn kom fram ásamt því að sviðslistahópurinn Hringleikur lék listir sínar fyrir gesti í hönnun eftir Ýrúrarí.
Í kjölfarið opnuðu yfir 100 sýningar hátíðarinnar sem breiðir úr sér um alla borg með fjölbreyttum og forvitnilegum hætti. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er Hvað nú? þar sem 100 sýningar, 400 þátttakendur og 100 viðburðir endurspegla það sem efst er á baugi á sviði hönnunar og arkitektúrs, veita innsýn inn í nýjar lausnir og hugmyndir og sýna nýjar leiðir til að takast á við áskoranir samtímans til innblásturs fyrir þátttakendur og gesti.
Hátíðin stendur yfir dagana 3. - 7. maí og skapandi tilraunir, endurvinnsla, nýsköpun, endurnýting, verðmætasköpun og leikur eru rauður þráður í dagskránni þar sem ólíkar hönnunargreinar á borð við arkitektúr, grafíska hönnun, fatahönnun, vöruhönnun og stafræna hönnun varpa ljósi á þá miklu grósku sem á sér stað í hönnun hér á landi.
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/a507d0e6-2adf-4e0c-bbd8-1eced58fc6ac_20x30cm+23.05.03_W8A0136.jpg?auto=compress,format)
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/7e4ad881-0492-4f35-9d82-d7dd484ccb2e_20x30cm+23.05.03_W8A0840.jpg?auto=compress,format)
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/de1cd8e0-307e-4538-9eeb-b75a79835901_20x30cm+23.05.03_W8A0757.jpg?auto=compress,format)
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/a507d0e6-2adf-4e0c-bbd8-1eced58fc6ac_20x30cm+23.05.03_W8A0136.jpg?auto=compress,format)