HönnunarMars er að hefjast - kynntu þér fjölbreytta dagskrá
HönnunarMars brestur á í allri sinni dýrð á miðvikudaginn. Dagskráin er komin í loftið en þar er að finna um 80 sýningar og 100 viðburði sem teygja sig yfir allt höfuðborgarsvæðið, frá Seltjarnarnesi, gegnum Hafnartorg, miðbæinn, Skeifuna, Kópavog, uppi í Garðabæ, Hafnarfjörð og Mosfellsbæ.
Vöruhönnun, fatahönnun, arkitektúr, grafísk hönnun, gullsmíði, nýsköpun, tækni, sjálfbærni, keramík, textíll og margt margt fleira!
Þetta er í tólfta sinn sem HönnunarMars fer fram en hátíðin boðar nýjungar og óvænta nálgun. Hún er lífleg höfn hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar, hreyfiafl sem auðgar og bætir samfélagið.
Öll áhersla hátíðarinnar í ár er á sýningar og sýnendur og um leið upplifun og öryggi gesta.
HönnunarMars er boðberi bjartsýni og skapandi krafta í samfélaginu. Nú gefst tækifæri til að beina sjónum að hönnun sem drifkraft til nýsköpunar og sýna hversu mikilvægu hlutverki þessar greinar gegna í samfélaginu, á þeim óvissutímum sem við lifum nú. Sem ein af sex borgarhátíðum Reykjavíkur standa vonir til að hátíðin í ár veiti íbúum og gestum borgarinnar innblástur og gleði.
Fylgstu með HönnunarMars á samfélagsmiðlum hátíðarinnar - @designmarch - þar sem allt mun iða af lífi og hönnun og arkitektúr miðlað í fjölbreyttu formi!
Sjáumst á HönnunarMars!