Hönnunarverðlaun Íslands 2020 - leitin að framúrskarandi verkum á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi er hafin
Leitin að framúrskarandi verkum á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi er hafin fyrir Hönnunarverðlaun Íslands 2020. Búið er að opna fyrir ábendingar en hægt er að benda á eigin verk eða annarra til miðnættis 21. september 2020. Áætlað er að verðlaunaafhending og málþing þeim tengt fari fram þann 5. nóvember næstkomandi.
Hægt er að benda á verk í tveimur flokkum, Hönnun ársins 2020 og Besta fjárfesting ársins 2020 í hönnun. Vinningshafar geta komið úr öllum greinum hönnunar en þurfa að skara verulega fram úr með verkefni sínu eða vinnu.
Til að hljóta Hönnunarverðlaun Íslands 2020 þurfa hönnuðir að vera félagar í einu af aðildarfélögum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs eða vera fagmenn á sínu sviði.
Ný verk teljast til þeirra verka sem lokið hefur verið við á síðustu þremur árum fyrir afhendingu verðlaunanna. Tekið er tillit til eðlismunar á hönnunargreinunum í þessu samhengi þar sem verkefni taka mislangan tíma og í sumum tilfellum mörg ár.
Besta fjárfesting í hönnun 2020 er viðurkenning sem veitt er fyrirtæki sem hefur með eftirtektarverðum hætti fjárfest í hönnun og arkitektúr eða innleitt aðferðir hönnunar í grunnstarfsemi sína. Fyrirtæki sem eiga þess kost að hljóta viðurkenninguna hafa hönnun og arkitekúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina.
Hægt er að benda á eigin verk og verk annarra til miðnættis mánudaginn 21. september 2020. Markmið með innsendingum er að tryggja að afburða verk fari ekki fram hjá dómnefnd og því hvetjum við eigendur góðra verka til þess að tilnefna eigin verk.
Hönnunarverðlaun Íslands eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 krónur, sem hafa verið veitt af ráðherra ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunar.
Dómnefnd í ár er skipuð þeim Sigríði Sigurjónsdóttur, formaður dómnefndar, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands og fyrrum prófessor í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands, Sigrúnu Birgisdóttur, arkitekt og prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands, Herði Lárussyni, grafískur hönnuður og einn af eigendum hönnunarstofunnar Kolofon, Sigrúnu Höllu Unnarsdóttur, fatahönnuður og stofnandi og meðlimur í hönnunarteyminu IIIF, Paul Bennett, hönnunarstjóri (e. Chief Creative Officer) hjá IDEO og Margréti Kristínu Sigurðardóttur, almannatengsla- og samskiptastjóri frá Samtökum iðnaðarins.