Hönnunarverðlaunum Íslands 2021 fagnað
Hönnunarverðlaun Íslands 2021 fóru fram í Grósku þann 29. október við hátíðlega athöfn fyrir fullum sal gesta. Kynnir kvöldsins var Guðrún Sóley Gestsdóttir, fjölmiðlakona en fyrr um daginn fór fram samtal um framtíð byggða á hönnun, hugviti og nýsköpun undir stjórn Hrundar Gunnsteinsdóttur, framkvæmdastjóri Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni.
Fyrst fór fram Samtal um framtíð byggða á hönnun, hugviti og nýsköpun sem hófst með snörpum erindum um tilnefningar til verðlaunanna í ár ásamt líflegum pallborðsumræðum þar sem sátu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
Í ár voru fimm framúrskarandi verkefni á sviði hönnunar og arkitektúrs tilnefnd: made in reykjavík eftir Magneu Einarsdóttur, Hjaltalín - ∞“ eftir grafíska hönnuðinn Sigurð Oddsson, myndhöggvarann Matthías Rúnar Sigurðsson og þrívíddarhönnuðinn Gabríel Benedikt Bachmann, Söluhús við Ægisgarð eftir Yrki arkitekta, Konur sem kjósa eftir Snæfríði Þorsteins, Hildigunni Gunnarsdóttur og Agnar Frey Stefánsson og hönnunarverkefnið Þykjó eftir hönnuðina Sigríði Sunnu Reynisdóttur, Ninnu Þórarinsdóttur, Sigurbjörgu Stefánsdóttir og Erlu Ólafsdóttur.
Handhafar Hönnunarverðlauna Íslands 2021 eru Sigurður Oddsson, Matthías Rúnar Sigurðsson og Gabríel Benedikt Bachmann fyrir verkefnið Hjaltalín - ∞
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti þeim verðlaunin.
„Myndræn framsetning er óaðfinnanleg. Samspil ljóss og skugga skapar einstaka kyrrð og hlýju. Stund frosin í tíma. Leturval er vel við hæfi og táknróf plötunnar vísar smekklega í gyllta plötu Voyager geimfarsins sem er flöskuskeyti mannkyns út fyrir okkar sólkerfi. Það er mat dómnefndar Hönnunarverðlauna Íslands árið 2021 að hönnun plötuumslags og heildarútfærsla „∞“ sé einstaklega sterkt heildrænt verk og metnaðarfullur minnisvarði um samspil tónlistar og hönnunar til framtíðar.“
Viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun árið 2021 hlýtur fyrirtækið CCP Games
Það var Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins sem veitti forsvarsmönnum CCP viðurkenninguna.
„Tölvuleikjaiðnaðurinn er í dag mjög mikilvægur hluti skapandi greina og vaxandi hugverkaiðnaðar á Íslandi með tuttugu starfandi fyrirtæki sem sérhæfa sig í tölvuleikjagerð. Starfsemi CCP hefur haft ómetanleg áhrif á fagið í heild og lagði á sínum tíma grunn að nýjum vettvangi hönnunar hér á landi sem flestum þykir nú sjálfsagður.“
Gunnar Magnússon, húsgagnahönnuður og innanhússarkitekt hlýtur Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands árið 2021
Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra veitti afkomendur Gunnars tóku á móti verðlaunum fyrir hans hönd, þar sem hann átti ekki heimangengt.
„Í gegnum árin hefur Gunnar tekið þátt í fjölda sýninga og unnið til alþjóðlegra verðlauna. Um leið og verk hans endurspegla tíðarandann í norrænni hönnun á seinni hluta síðustu aldar eru höfundareinkenni Gunnars auðþekkjanleg og skapa verkum hans sérstöðu sem glæsilegir fulltrúar blómlegs tímabils í íslenskri húsgagnahönnun.“
Undanfarin ár hefur dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands veitt viðurkenningar til fyrirtækja fyrir bestu fjárfestingu í hönnun. Það er þó ekki síður mikilvægt að opinberir aðilar og stofnanir fjárfesti í hönnun innan starfsemi sinnar og í ár þykir dómnefnd verðugt að veita sérstakt hrós fyrir faglega nálgun og fjárfestingu Embættis landlæknis og Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra við gerð og framkvæmd herferðarinnar „Við erum öll almannavarnir“ og efnisgáttina covid.is. Á fordæmalausum tímum urðu embættin að bregðast hratt og örugglega við og fengu auglýsingastofuna Hvíta húsið með sér í lið við útfærslu á fræðsluefni, upplýsingaveitu og samhæfðum aðgerðum ætluðum til þess að stemma stigu við uppgangi Covid-19 faraldursins.
Fyrir vikið fékk krefjandi og flókið verkefni aðgengilegt og létt yfirbragð; myndskreytingar glæða viðfangsefnin manneskjulegum blæ, viðmótið er auðskilið og leiðbeiningar og annað prentefni fyrir fyrirtæki og aðra starfsemi ávallt uppfært og vandað. Tónninn er hlýr og sveigjanlegur og hvetur til samstöðu, sem var einmitt það sem til þurfti.
Heildræn mörkun almannavarna vegna Covid-19 er til fyrirmyndar og fordæmisgefandi fjárfesting í hönnun á vegum hins opinbera.
Hvíta húsið: Davíð Terrazas (listrænn stjórnandi), Rósa Hrund Kristjánsdóttir (hönnunarstjóri), Ágúst Gunnarsson (vefhönnuður), Viktoria Buzukina (myndhöfundur), Guðrún Jónsdóttir (kvikun), Þorgeir Tryggvason (textagerð) og Eiríkur Guðleifsson (ráðgjafi).
Verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn árið 2014 og varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Verðlaunin beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.
Í dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2021 sátu:
María Kristín Jónsdóttir/Sigríður Sigurjónsdóttir, formenn, Hönnunarsafn Íslands
Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, LHÍ
Þorleifur Gíslason, grafískur hönnuður MH&A
Margrét Kristín Sigurðardóttir, SI
Katarina Siltavuori, framkvæmdastjóri Archinfo í Finnlandi. MH&A
Ragna Fróðadóttir, textíl- og fatahönnuður, og framkvæmdastjóri Edelkoort Inc. MH&A
Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.