Sigurður Oddsson, Matthías Rúnar Sigurðsson og Gabríel Benedikt Bachmann hljóta Hönnunarverðlauna Íslands 2021 fyrir Hjaltalín - ∞
Hönnunarverðlaun Íslands 2021 voru afhent með hátíðlegum hætti 29. október í Grósku. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti hönnuðinum Sigurðu Oddssyni, myndhöggvaranum Matthíasi Rúnari Sigurðssyni og þrívíddarhönnuðinum Gabríel Benedikt Bachmann Hönnunarverðlaun Íslands 2021 fyrir verkefnið Hjaltalín - ∞.
Frá dómnefnd:
Platan „∞“ er tímalaust tímamótaverk í myndrænni og þrívíðri nálgun. Í hönnun fjórðu breiðskífu hljómsveitarinnar Hjaltalín veltir Sigurður Oddsson, grafískur hönnuður og listrænn stjórnandi verksins, upp hugmyndum um varanleika og hlutgervingu tónlistar í samtali og samvinnu við myndhöggvarann Matthías Rúnar Sigurðsson og þrívíddarhönnuðinn Gabríel Benedikt Bachmann.
Ferlið við tónsmíðar og plötuútgáfu er hugræn meðganga, hugarfóstur tónlistarfólks sem í ferlinu tekur á sig mynd, vex og dafnar. Útgáfa plötunnar er svo fæðingin, tímamót og afurðin endanleg. Óhagganleg og eilíf, meitluð í stein.
Í meðförum teymisins er hljóðheimur sköpunar hlutgerður sem úlfabarn, höggmynd úr basalti sem er jafnframt teiknuð og vistuð í þrívíðu stafrænu formi til þess að hámarka endingartíma og auðvelda birtingarmynd þess á ólíkum miðlum. Úlfabarninu er ætlaður endanlegur hvílustaður hjá Úlfarsfelli, sem þrívíður minnisvarði um tilvist útgáfunnar, sem nær langt umfram þá sem tíðkast hefur í plötuútgáfu til þessa.
Myndræn framsetning er óaðfinnanleg. Samspil ljóss og skugga skapar einstaka kyrrð og hlýju. Stund frosin í tíma. Leturval er vel við hæfi og táknróf plötunnar vísar smekklega í gyllta plötu Voyager geimfarsins sem er flöskuskeyti mannkyns út fyrir okkar sólkerfi. Það er mat dómnefndar Hönnunarverðlauna Íslands árið 2021 að hönnun plötuumslags og heildarútfærsla „∞“ sé einstaklega sterkt heildrænt verk og metnaðarfullur minnisvarði um samspil tónlistar og hönnunar til framtíðar.
Hönnunarverðlaun Íslands 2021 fóru fram í Grósku þann 29. október við hátíðlega athöfn fyrir fullum sal gesta. Kynnir kvöldsins var Guðrún Sóley Gestsdóttir, fjölmiðlakona en fyrr um daginn fór fram samtal um framtíð byggða á hönnun, hugviti og nýsköpun undir stjórn Hrundar Gunnsteinsdóttur, framkvæmdastjóri Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni.
Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í fyrsta sinn árið 2014 og varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Verðlaunin beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.
Í dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2021 sátu:
María Kristín Jónsdóttir/Sigríður Sigurjónsdóttir, formenn, Hönnunarsafn Íslands
Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, LHÍ
Þorleifur Gíslason, grafískur hönnuður MH&A
Margrét Kristín Sigurðardóttir, SI
Katarina Siltavuori, framkvæmdastjóri Archinfo í Finnlandi. MH&A
Ragna Fróðadóttir, textíl- og fatahönnuður, og framkvæmdastjóri Edelkoort Inc. MH&A
Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.