Listaháskólinn auglýsir eftir umsóknum um starf háskólakennara í grafískri hönnun
Listaháskólinn auglýsir eftir umsóknum um starf háskólakennara í grafískri hönnun. Viðkomandi mun m.a. koma að þróun námskeiða fyrir stafræna miðlun. Umsóknarfrestur er til 25. júní 2021.
Starfið felur í sér kennslu og stefnumótun um nám í grafískri hönnun við hönnunardeild. Viðkomandi mun vera þátttakandi í fræða- og fagsamfélagi Listaháskólans. Starfshlutfall er 50% með möguleika á auknu hlutfalli.
Hæfi umsækjanda verður metið samkvæmt reglum Listaháskóla Íslands um veitingu akademískra starfa, sjá nánar á hér. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sé reglurnar við gerð umsóknar. Við ráðningu verður meðal annars litið til þess hvaða hæfileika ætla megi að umsækjandi hafi til samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til starfa innan skólans. Umsækjendur sem hljóta hæfi verða boðaðir til viðtals og mun frammistaða í viðtölum hafa mikið vægi við ákvörðun ráðningar.
Menntunar- og hæfiskröfur
- Bakkalárgráða í grafískri hönnun
- Meistaragráða í hönnun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Sterk fagleg sýn og starfsreynsla á sviði grafískrar hönnunar.
- Þekking og reynsla af hönnun fyrir stafræna miðla.
- Reynsla af kennslu á háskólastigi.
Með umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:
- Greinargóð starfsferilskrá.
- Staðfest afrit af prófskírteinum.
- Greinargerð sem sýnir faglega sýn umsækjanda á þróun háskólamenntunar í grafískri hönnun.
- Nöfn aðila sem leita má til með umsagnir.
- Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill koma á framfæri.
Hæfismat og viðtöl munu fara fram í ágúst 2021.
Upplýsingar um starfið veitir Katrín Ólína Pétursdóttir, deildarforseti hönnunardeildar, katrinolina@lhi.is og Eva María Árnadóttir sviðsforseti arkitektúrs, hönnunar og myndlistar, evamaria@lhi.is.
Umsóknargögnum skal skilað á netfangið starfsumsokn@lhi.is eigi síðar en 25.06.2021 merktum: „Háskólakennari í grafískri hönnun“.