Löggildingarnámskeið fyrir mannvirkjahönnuði í apríl
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Húsnæðis - og mannvirkjastofnunar til að gera aðal-og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í apríl og maí 2024 og verður námskeiðið í fjarkennslu.
Opnað verður fyrir fyrirlestra þriðjudaginn 9. apríl kl. 9.00 og verða þeir opnir til 3. maí kl. 12.00. Námskeiðinu lýkur með prófi föstudaginn 3. maí kl. 9.00-12.00.
Námskeiðsgjald er 95.000.-kr og 60.0000.-kr. fyrir þá sem sækja námskeiði til endurmenntunar án prófs.
Sótt er um þátttöku á námskeiðinu á mínum síðum á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þeim skal skilað ásamt fylgigögnum eigi síðar en mánudaginn 1.apríl nk.
Fylgigögn með umsókninni:
- Staðfest afrit af prófskírteini umsækjenda.
- Staðfesting ráðuneytis um réttindi til starfsheitis.
- Vottorð/um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1 mgr. 26. gr. laga um mannvirki.