Málþingið Náttúra og hönnun
Fimmtudaginn 17.ágúst nk. mun FÍLA standa að hálfs dags málþingi í Grósku sem ber yfirskriftina Náttúra og hönnun - Hvernig fær náttúran aukinn sess í mannvirkjagerð?
FÍLA hefur fengið til sín flotta fyrirlesara frá Norðurlöndunum sem hafa sérhæft sig í málefnum eins og stöðu vistkerfa í byggðu umhverfi, lífsferilsmat í umhverfishönnun og fengið verðlaun fyrir hönnun sem samþættir loftslagslausnir og líffræðilegan fjölbreytileika ásamt því að skapa samfélagslega sterk rými í byggðu umhverfi. Íslenskir fyrirlesarar munu fjalla um stöðu líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi, hvers þarf að horfa til í hönnun og áætlanagerð er varðar loftslagsbreytingar og einnig verður farið yfir feril þeirra áætlana sem liggja fyrir í Landmannalaugum.
Það er frítt inn á málþingið og öll eru velkomin!
Dagskrá
12:30 Húsið opnar
Fundarstjóri er Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, landslagsarkitekt
13:00 Setning málþings, Ómar Ingþórsson, landslagsarkitekt og formaður FÍLA
13:05 Halldór Björnsson, haf- og veðurfræðingur, Veðurstofa Íslands: Loftslagsbreytingar.
13:20 Martin Hedevang, landslagsarkitekt og formaður Danske Landskabsarkitekter. Circular Economy in Landscape Architecture. Erindið verður flutt á ensku.
13:40 Snorri Sigurðsson, Ph.D. í líffræði, Náttúrufræðistofnun Íslands: Líffræðileg fjölbreytni - hvernig kemur það hönnun mannvirkja við?
13:55 Hanna Ahlström Isacsson, landslagsarkitekt: Biodiversity & Design – 5 ingredients. Erindið verður flutt á ensku.
14:40 Kaffihlé
15:00 Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, Teiknistofan Stika: Mannlíf, byggð og bæjarrými.
15:15 Áslaug Traustadóttir, landslagsarkitekt Landmótun og Indro Indriði Candi, arkitekt VA Arkitektar: Landmannalaugar, hönnun í friðlandi.
15:40 Jens Linnet, landslagsarkitekt, teiknistofan BOGL: When beauty creates change.Erindið verður flutt á ensku.
16:25 Samantekt málþings Fundarstjóri
16:30 Málþingsslit