Námskeið um uppbyggingu ferðamannastaða
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands stendur fyrir námsstefnu um uppbyggingu ferðamannastaða en námskeiðið er í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.
Námskeiðið er ætlað þeim sem koma að skipulagi, hönnun, framkvæmdum og umsjón ferðamannastaða, þeirra á meðal fulltrúum sveitarfélaga, landeigendum, verktökum, arkitektum, landslagsarkitektum, skipulagsfræðingum og áhugamannafélögum.
Fjallað er um þá skipulags- og undirbúningsvinnu sem þarf að liggja fyrir áður en framkvæmdir hefjast, meðal annars skráningar fornleifa og menningarminja, leyfisveitingar, öryggismál og fjármögnun verkefna. Einnig verður fjallað skipulags- og hönnunarferli frá hugmynd til veruleika með það fyrir augum að innviðauppbygging byggist á fagmennsku og vönduðum undirbúningi svo hún hafi ekki í för með sér röskun á náttúru og menningarminjum.
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að hafa öðlast yfirsýn og skilning á ólíkum þáttum skipulags- og hönnunarvinnu sem er undanfari framkvæmda á áfangastöðum.
Fyrirlesarar eru Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir verkefnastjóri Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða hjá Ferðamálastofu, Gunnar Óli Guðjónsson landslagsarkitekt, Hrólfur Karl Cela arkitekt og meðeigandi Basalts, Hörður Lárusson eigandi Kolofon, Sigbjörn Kjartansson arkitekt hjá Gláma-Kím, Sólrún Inga Traustadóttir fornleifafræðingur hjá Minjastofnun, Uggi Ævarsson minjavörður hjá Minjastofnun og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslag.
Námsstefnustjóri er Anna María Bogadóttir, arkitekt.
Námskeiðið fer fram þriðjudaginn 20. apríl milli kl. 10-15 og er haldið hjá LBHÍ á Keldnaholti, Árleyni 22 Reykjavík, en boðið verður upp á streymi fyrir þá sem búa fjarri höfuðborginni eða eiga ekki heimangengt þennan dag og verður linkur sendur á þátttakendur deginum áður.
Verð: 29.000 kr.