HönnunarMars 2024 - Nemendasýningar
HönnunarMars er rétt handan við hornið en hátíðin fer fram dagana 24. - 28. apríl og fjölbreytt dagskráin breiðir úr sér um alla borg. Í boði eru um 100 sýningar og 200 viðburðir - eitthvað fyrir öll!
Afrakstur nemenda í hönnunarnámi lítur dagsins ljós á HönnunarMars 2024. Sýningarnar eru af ólíkum toga en nemendurnir hafa lagt stund á nám í grafískri hönnun, vöruhönnun, fatahönnun og keramik, hérlendis og erlendis. Hér má sjá yfirlit yfir nemendasýningar hátíðarinnar í ár.
Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun LHÍ
Sex nemendur í fatahönnun við Listaháskóla Íslands kynna BA-útskriftarverkefni sín á tískusýningu í Hörpu á HönnunarMars. Lokaverkefni nemenda í fatahönnun er einstaklingsverkefni sem samanstendur af frjálsri rannsókn, hönnun og gerð á línu af tískufatnaði undir handleiðslu leiðbeinenda. Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun er hluti af viðamikilli dagskrá útskriftarhátíðar Listaháskóla Íslands.
Nýting og nægjusemi
Nýting og nægjusemi er yfirskrift sýningar níu nemenda keramikbrautar Myndlistaskólans í Reykjavík. Tilgangur hennar er að vekja athygli á því hversu mikilvægt er að hægja á neysluhyggju og þeim hraða sem við lifum við í samtímanum. Sýningin er unnin undir handleiðslu gipsmeistarans og hönnuðarins Jens Pfotenhauer en í þriggja vikna áfanga hjá Jens lærðu nemendur ýmsar aðferðir í gipsmótagerð. Meðan á sýningu stendur munu nemendur skiptast á að hella postulínsmassa í mótin sín til að sýna ferlið.
Útópíska prentverkstæðið
Í námi sínu í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands fá nemendur aðgang að margskonar prenttækjum og aðferðum á prentverkstæðunum í Þverholti og Laugarnesi. Á sýningu HönnunarMars 2024 verða sýnd verk sem unnin voru á þessum prentverkstæðum af nemendum á 1. og 2. ári í grafískri hönnun 2023-2024.
Undan Esju
Nemendur á fyrsta ári í vöruhönnun við LHÍ bjóða í ferðalag um Esjuhlíðar þar sem gestir fá aðra sýn á landslagið í gegnum mismunandi miðla og skynfæri. Verk nemendanna liggja á víð og dreif um fjallshlíðina en um er að ræða innsetningar innblásnar af umhverfi Esjunnar þar sem samband náttúru og manns var skoðað. Verkefnin eru afrakstur tveggja vikna vinnustofu og fjalla um ólík viðfangsefni og mismunandi túlkanir nemenda á umhverfinu.
Gallerí ullarlampi
Á sýningunni Gallerí ullarlampi má sjá röð ljósabúnaðar sem hannaður er af nemendum við vöruhönnunarnám við École Supérieure d'Arts Appliqués et Textile (ESAAT). Með innblæstri frá landslagi, ríkum litum og flókinni áferð Íslands hafa nemendurnir kannað einstaka eiginleika náttúrulegra efna. Sýningin leggur áherslu á fjölhæfni, hlýju og sjálfbærni ullar, og samhliða virðir hún ríkulega textílarfleifð Íslands. Hvert verk, allt frá hengiljósum til borðlampa, endurspeglar skapandi rannsóknarferli og handverk nemenda.
Þekkir þú fjallið?
Þekkir þú fjallið er samsýning Fatasöfnunar Rauða krossins, Hringrásarklasans og námsbrautar í fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Hugmyndin er að varpa ljósi á ofgnótt textíls og mikilvægi þess að fólk og fyrirtæki vinni í sameiningu að því að draga úr sóun og skapa hringrás textíls, náttúrunni og framtíðarkynslóðum til heilla.