Opið fyrir umsóknir í Ásmundasal
Ásmundarsalur óskar eftir umsóknum fyrir komandi sýningarár; Myndlist, sviðslist, tónlist og hönnun. Umsóknarfrestur er til 15. júní.
Óskað er eftir að umsóknir berist í gegnum umsóknareyðublað sem finna má á heimasíðu Ásmundarsalar.
Leitað er eftir umsóknum fyrir 5 - 6 vikna einkasýningar og samsýningar í 72 fm sýningasal á 2. hæð. Einnig er kallað eftir sýningum á kaffihúsið á 1stu hæð, 4 - 8 vikna vinnustofum í Gunnfríðargryfju og sviðslistaverkum. Tekið er á móti umsóknum til og með 15. júní 2024.
Svör berast til allra umsækjanda fyrir 15. september 2024. Persónuupplýsingar umsækjanda og umsóknir verða aðeins aðgengilegar fagráði og stjórnendum Ásmundarsalar. Allar nánari upplýsingar um umsóknarferlið á asmundarsalur.is