Opnun á Hönnunarsafni Íslands - Einar Þorsteinn, fyrir ungt fólk á öllum aldri
Sunnudaginn 21. mars verður formlega tekið í notkun nýtt leik- og fræðsluborð tileinkað og innblásið af hugarheimi og verkum Einars Þorsteins Ásgeirsson, hönnuðar og stærðfræðings í Hönnunarsafni Íslands. Verkefnið er samstarf Hönnunarsafns Íslands við Jóhönnu Ásgeirsdóttur, myndlistarmann sem hefur sérhæft sig í miðlun stærðfræði með aðferðum lista og Hrein Bernharðsson, vöruhönnuð.
Borðið er ætlað fyrir alla fjölskylduna og hvetur til sköpunar, tilrauna og uppgötvana tengdum stærðfræði. Borðið hentar öllum aldurshópum, og það er alls ekki skilyrði að vera stærðfræðiséní. Jóhanna mun leiða gesti í gegnum stærðfræði-ævintýri á þessari frumsýningu borðsins.
Verkefnið var styrkt af Barnamenningarsjóði 2020.
Vinsamlegast skráið fullorðna þátttakendur með kennitölu og símanúmeri í netfangið honnunarsafn@honnunarsafn.is.