Opnunarhóf HönnunarMars 2023
Verið öll velkomin í opnunarhóf HönnunarMars 2023 !
Fimmtánda árið í röð er HönnunarMars boðberi nýrra hugmynda, innblásturs, skapandi lausna og bjartsýni þar sem framsækin hönnun og nýjungar leiða saman sýnendur og gesti.
Hittumst og setjum hátíðina með formlegum hætti í Hörpu miðvikudaginn 3. maí frá kl. 17:00 - 18:00. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar, munu setja hátíðina. Í kjölfarið taka við opnanir og viðburðir út um alla borg, til 7. maí.
Í ár endurspegla 100 sýningar, 400 þátttakendur og 100 viðburðir það sem efst er á baugi á sviði hönnunar og arkitektúrs, veita innsýn inn í nýjar lausnir og hugmyndir og sýna nýjar leiðir til að takast á við áskoranir samtímans til innblásturs fyrir þátttakendur og gesti.
Skapandi tilraunir, endurvinnsla, nýsköpun, endurnýting, verðmætasköpun og leikur eru rauður þráður í dagskránni þar sem ólíkar hönnunargreinar á borð við arkitektúr, grafíska hönnun, fatahönnun, vöruhönnun og stafræna hönnun varpa ljósi á þá miklu grósku sem á sér stað í hönnun hér á landi
Sjáumst!