Rýnifundur - samkeppni um skóla í Vogabyggð
Rýnifundur um þær tillögur sem bárust í samkeppni um nýja skólabyggingu í Vogabyggð verður haldinn þriðjudaginn 30. apríl kl. 16.00 í Borgartúni 12-14.
Reykjavíkurborg í samstarfi við Arkitektafélag Íslands efndi vorið 2023 til opinnar tveggja þrepa framkvæmdasamkeppni um heildstæðan leik- og grunnskóla, frístundaheimili og félagsmiðstöð ásamt göngu- og hjólabrú milli Vogabyggðar og skólabyggingar og útisvæðis á Fleyvangi.
Í fyrra þrepi bárust alls 24 tillögur og voru allar tillögur teknar til dóms. Vinna við seinna þrep hófs 22. september og voru fimm tillögur valdar til að vera þróaðar frekar. Tillögum á seinna þrepi var skilað þann 9. janúar.
Úti og inni arkitektar í samstarfi við Landform landslagsarkitekta og ONNO þrívíddarvinnslu hlutu fyrstu verðlaun í samkeppninni.
Hér er hægt að nálgast allar þær tillögur sem bárust í samkeppnina