Rýnifundur-Hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Breiðarinnar á Akranesi
Rýnifundur um tillögurnar 24 sem bárust í hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Breiðarinnar verður haldinn fimmtudaginn 30. júní kl. 17.00 í Hafbjargarhúsi, Breiðargötu 2c, á Akranesi.
Alls bárust 24 tillögur í hugmyndasamkeppnina sem auglýst var um miðjan janúar sl. og var öllum opin.
Við hvetjum alla þátttakendur sem og alla þá sem áhuga hafa á skipulagsmálum og arkitektúr að mæta.
Dómnefnd:
Tilnefndir af verkkaupa:
- Guðmundur Kristjánsson, fulltrúi Brims - formaður dómnefndar
- Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fulltrúi Brims
- Sævar Freyr Þráinsson, fulltrúi Akraneskaupstaðar
- Páll Hjaltason, arkitekt, FAÍ
Tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands:
- Heba Hertervig, arkitekt, FAÍ (Heba tók sæti Sigríðar Magnúsdóttur, arkitekt, FAÍ sem þurfti að víkja úr dómnefnd í febrúar 2022)
- Helgi Bollason Thoroddsen, arkitekt, FAÍ
- Ólafur Melsted, landslagsarkitekt, FÍLA