Silfursmiðurinn Anna María Pitt opnar vinnustofu í Hönnunarsafni Íslands
Silfursmiðurinn Anna María Pitt tekur yfir vinnustofurýmið í safnbúð Hönnunarsafns Íslands og stendur vinnustofudvölin til 26. janúar 2020.
Þetta er einnig sölusýning þar sem gestir geta verslað beint af hönnuðinum. Anna María útskrifaðist frá New Buckinghamshire háskólanum í Bretlandi í silfursmíði og skartgripahönnun.
Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga og þróað með sér afgerandi stíl í skartgripahönnun sem byggir á formum og mynstrum úr náttúrunni.
Hér er viðburðurinn á Facebook.