Skapalón - nýir þættir um hönnun og frumsýndir á RÚV
Fyrsti þáttur Skapalóns verður frumsýndur í kvöld, þriðjudaginn 3. maí, á RÚV en þættirnir veita innsýn grósku íslenskrar hönnunar. Þættirnir eru fjórir og verða sýndir á þriðjudagskvöldum í maí. Þáttastjórnandi er Logi Pedro, leikstjóri Erlendur Sveinsson og framleiðsla er í höndum 101 Productions.
Þættirnir eru frumlegir og ferskir og markmiðið er að gefa áhorfendum áhugaverða og skemmtilega sýn inn í störf hönnuða og hvernig hönnun og arkitektúr hefur áhrif á allt okkar líf.
Á meðal viðmælenda má nefna Hafstein Júlíusson og Karitas Sveinsdóttur hjá Haf Studio, Arnar Má Jónsson, fatahönnuð, Snæfríð Þorsteins, grafískan hönnuð, Garðar Eyjólfsson, vöruhönnuð, Sigríði Sigþórsdóttur, arkitekt, Hrefnu Sigurðardóttur og Birtu Rós Brynjólfsdóttur hjá Stúdíó Fléttu og Sigurð Oddsson, grafískan hönnuð. Nám í hönnun og arkitektúr nýtur vaxandi vinsælda meðal ungs fólks og mikilvægt að þættirnir veiti góða innsýn inn í stöðu hönnunar hér á landi, og nýtist nemendum og kennurum, sem innblástur, námsefni og heimild.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og List fyrir alla hlutu styrk úr Barnamenningarsjóði og fengu RÚV og 101 Production til liðs við sig við framleiðslu þáttanna. Þeim er ætlað að höfða til ungmenna þar sem ljósi er varpað á ólíkar hönnunargreinar með aðgengilegum og áhugaverðum hætti. Logi Pedro stýrir þáttunum en auk þess að starfa í tónlist og þáttagerð er hann nemi í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands.
Þættirnir verða sýndir á RÚV á þriðjudagskvöldum í maí. Fyrsti þátturinn fer í loftið í kvöld er tileinkaður fatahönnun. Þættirnir verða svo aðgengilegir á heimasíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og Listveitu - List fyrir alla.
Ekki missa af Skapalón!