Slippbarinn X HönnunarMars
Slippbarinn á Icelandair hótel Reykjavík Marina verður sérstakur hátíðarbar HönnunarMars 2022. Það er nóg um að vera á hátíðinni í ár og nauðsynlegt fyrir gesti hafa samkomustað þar sem hægt er að setjast niður á milli viðburða, vera umkringdur litríkri íslenskri hönnun, og hlaða batteríin yfir mat og sérstökum HönnunarMars kokteilum.
Hægt verður að nálgast kort af hátíðinni með upplýsingum um sýningar hátíðarinnar á Slippbarnum. Nokkrir viðburðir hátíðarinnar munu einnig fara fram á barnum.
Stuttmynd Icelandair, Why not? Designing the Spirit of Iceland, verður sýnd á eftirfarandi tíma í Slippbíó, bíósal Slippbarsins
Opnunartími Slippbíó:
3. maí - 09:00 - 23:00
4. maí - 09:00 – 10:30, 17:30 - 23:00
5. maí - 09:00 -14:00, 16:00 - 23:00
6. maí - 09:00 - 20:00
7. maí - 14:30 - 19:00
8. maí - 09:00 - 23:00
Lokapartý HönnunarMars 2022 fer fram á Slippbarnum laugardaginn 7. maí frá kl. 20:00. Skálum í kokteilum og fögnum saman uppskeruhátíð íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Hönnuðir fara í hlutverk plötusnúða og þeyta skífum.
Slippbarinn er einn af samstarfsaðilum HönnunarMars.