Sótt um 384 milljónir í Hönnunarsjóð
Lokað var fyrir umsóknir Hönnunarsjóð í gær en um er að ræða fyrri úthlutun ársins 2024. Alls bárust 121 umsókn í almenna styrki upp á tæpar 371 milljónir og 21 umsókn um ferðastyrki upp á tæpar 14 milljónir.
Nú hefst vinna stjórnar við yfirferð umsókna en 36 milljónir eru til úthlutunar.
Úthlutun er fyrirhuguð þann 22. mars næstkomandi.
Við þökkum umsækjendum fyrir og óskum þeim góðs gengis.