Takk fyrir HönnunarMars - sjáumst 2025
Þá er HönnunarMars liðinn undir lok, sextánda árið í röð en hátíðin hefur svo sannarlega sett líflegan blæ á borgina síðustu daga.
Yfir 100 sýningar, 200 viðburðir og 400 þátttakendur heilluðu mörg þúsund gesti höfuðborgarsvæðisins með frábærum sýningum með vöktu forvitni, gleði og innblástur.
Við þökkum gestum fyrir komuna, bakhjörlum og samstarfsaðilum fyrir gott samstarf og ekki síst óskum við þátttakendum til hamingju með vel heppnaða hátíð og góðar sýningar.
HönnunarMars 2025 fer fram dagana 2. - 6. apríl - sjáumst þá!