Útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands
Útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands er hafin en hún er afar fjölbreytt og á dagskrá eru fjölmargir viðburðir frá öllum deildum Listaháskólans.
Frítt er inn á alla viðburði. Útskriftarsýning hönnunar- og arkitektúrdeildar opnar laugardaginn 11. maí í Hafnarhúsinu.
Á sýningunni getur að líta lokaverkefni 77 nemenda í myndlist, grafískri hönnun, arkitektúr, fatahönnun og vöruhönnun. Verkin á sýningunni endurspegla áherslur, nám, rannsóknir og listsköpun nemenda síðastliðin þrjú ár.
Sýningastjórar eru Melanie Ubaldo (myndlist), Rúna Thors (vöruhönnun), Ragna Sigríður Bjarnadóttir (fatahönnun), Adam Flint (grafísk hönnun), Birta Fróðadóttir, Bjarki Gunnar Halldórsson og Anna Kristín Karlsdóttir (arkitektúr).
Sýningin er opin alla daga 10:00- 17:00. Á fimmtudögum er sýningin opin til 22:00.
Glitský
Í vetrarstillum sjást gjarnan glitský við sólarlag eða sólaruppkomu sem ljósrákir og stórbrotin litadýrð á himni. Glitský samanstanda af fjölda örsmárra ískristalla sem baðaðir eru sólarljósi þótt á jörðu niðri sé rökkvað eða aldimmt. Ískristallarnir beygja sólarljósið mismikið og útkoman minnir á svífandi olíubrák, sindrandi perlu, glansandi skel eða glitrandi sykur; skýið er hvítt en einnig gult, rautt, grænt og blátt. Litríkir flekkir ferðast um heiðhvolfið en staðnæmast á fleti við yfirborð jarðar þegar gripið er í myndavél sem veitir undrinu inn í heim samfélagsmiðla og tölvutækni. Ljómi þeirra heillar en er einnig túlkaður sem fyrirboði mikilla tíðinda, svo sem vetrarharðinda eða hlýnunar.
Á útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands 2024 sýna yfir 70 nemendur úr myndlistardeild, hönnun og arkitektúr verk sín þar sem þau meðal annars kljást við endurskilgreiningu kynslóðahússins, skoða djöflavæðingu á náttúrulegum fyrirbærum, rannsaka hvort hægt sé að búa til hátískufatnað úr íslenskri ull án þess að koma nokkurntíman nálægt saumavél, gera tilraunir með nýja tækni til sjónrænnar miðlunar og leita að fegurðinni í ógurleika samtímans. Verkefnin endurspegla nám, rannsóknir og listsköpun þeirra á síðustu árum.Útskriftarnemendurnir takast á við áskorarnir okkar daga – ljós og myrkur, kulda og hlýju – og útkoman boðar tíðindi.