Á bakvið við vöruna - Anita Hirlekar
Í þáttunum Á bakvið vöruna er skyggnst inn í heim íslenskra frumkvöðla og hönnuða sem starfrækja rekstur sinn í skapandi grósku Miðborgarinnar. Í fjórða myndbandi seríunnar er talað við Anítu Hirlekar, fatahönnuð, sem á örfáum árum hefur orðið ein af skærustu stjörnum íslenskrar fatahönnunar.
Hönnun Anitu einkennist af sterkum og áhrifaríkum litasamsetningum, bróderuðum flíkum og handmáluðum mynstrum. Nýjast lína Anitu var unnin og framleidd frá upphafi til enda innan landsteinanna og er fáanlega í Kiosk.
Verkefnið Á bakvið við vöruna er röð örmyndbanda í heimildarmyndaformi frá Blóð stúdíó. Í þáttunum er skyggnst inn í heim íslenskra frumkvöðla og hönnuða sem starfrækja rekstur sinn í skapandi grósku Miðborgarinnar.
Íslensk hönnun er ungt fag í stöðugum vexti og henni fylgir gríðarleg tækifæri í atvinnu- og verðmætasköpun. Markmið myndbandanna er að auka sýnileika fagsins og draga fram raunhæfa mynd af einstaklingunum sem þar standa á bak við og hvernig vörur þeirra verða til - allt frá hugmynd, yfir að söluvænni vöru í verslun. Með því að auka þennan sýnileika og samtímis fræða áhorfandann er verið að virkja hann sem mögulegan neytenda og þar með stuðla að aukinni sjálfbærni hönnunar og að uppvexti þess frumkvöðlastarfs innanlands.