Á bakvið við vöruna - Marko Svart
Í þáttunum Á bakvið vöruna er skyggnst inn í heim íslenskra frumkvöðla og hönnuða sem starfrækja rekstur sinn í skapandi grósku Miðborgarinnar. Í þriðja myndbandi seríunnar er talað við Marko Svart, sem rekur fatamerki og verslunina Svartbysvart á Týsgötu.
Þriðja myndbandið í seríunni Á bakvið vöruna snýr að finnsk-sænska fjöllistamanninum og hönnuðinum, Marko Svart. Hann rekur fatamerki og verslun sem bera nafnið svartbysvart á Týsgötu ásamt meðeigandanum sínum og maka, Momo. Helstu áherslur merkisins er kynlaus fatnaður og sjálfbærni í efnisnotkun og nytjavali.
Verkefnið Á bakvið við vöruna er röð örmyndbanda í heimildarmyndaformi frá Blóð stúdíó. Í þáttunum er skyggnst inn í heim íslenskra frumkvöðla og hönnuða sem starfrækja rekstur sinn í skapandi grósku Miðborgarinnar.
Íslensk hönnun er ungt fag í stöðugum vexti og henni fylgir gríðarleg tækifæri í atvinnu- og verðmætasköpun. Markmið myndbandanna er að auka sýnileika fagsins og draga fram raunhæfa mynd af einstaklingunum sem þar standa á bak við og hvernig vörur þeirra verða til - allt frá hugmynd, yfir að söluvænni vöru í verslun. Með því að auka þennan sýnileika og samtímis fræða áhorfandann er verið að virkja hann sem mögulegan neytenda og þar með stuðla að aukinni sjálfbærni hönnunar og að uppvexti þess frumkvöðlastarfs innanlands.