Aðalfundur Arkitektafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 28. febrúar
Þriðjudaginn 28. febrúar verður aðalfundur Arkitektafélags Íslands haldinn og hefst hann kl. 17.15. Fundurinn verður haldinn í Grósku, í salnum Fenjamýri á jarðhæð, gegnt Veru-mathöll. Aðalfundi verður einnig streymt fyrir þá sem eiga ekki heimangengt.
Að venju verður kosning í stjórn og nefndir félagsins og óskum við eftir framboði til trúnaðarstarfa félagsins. Núverandi stjórn býður sig áfram til stjórnarsetu og stór hluti nefndarmanna.
Arkitektafélags Íslands óskar sérstaklega eftir framboði í eftirfarandi nefndir:
- Dagskrárnefnd
- Laganefnd
- Orða- og ritstjórnarnefnd
- Menntanefnd
Allir áhugasamir eru hvattir til að senda framboð sitt á netfangið ai@ai.is
Dagskrá fundar
Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta og taka þátt en allir félagsmenn sem mæta hafa atkvæðarétt og geta þannig haft áhrif og mótað starf AÍ.
Taktu daginn frá!
Hlökkum til að sjá þig!
Stjórn og nefndir AÍ