Hönnun og nýsköpun boða til stefnumóts við stjórnmálin
Icelandic Startups og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs fjalla um áskoranir og tækifæri nýsköpunar og skapandi greina til framtíðar. Hvernig búum við til öflugt samfélag og atvinnulíf sem byggir á hönnun, hugviti og nýsköpun?
Frambjóðendum allra flokka til Alþingis er gefið tækifæri á að varpa fram spurningum og hugmyndum.
Við hvetjum hönnunarsamfélagið til að láta sér málin varða og mæta í samtalið.