Ferðamannastaðir-frá hugmynd til framkvæmdar
Fimmtudaginn 12. september kl. 9 standa Ferðamálastofa, Skipulagsstofnun og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs að kynningarfundi á Teams fyrir alla þá sem koma að uppbyggingu ferðamannastaða með einum eða öðrum hætti.
Á fundinum mun Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar, kynna nýjar leiðbeiningar um skipulag og leyfisveitingar Ferðamannastaða og Hörður Lárusson, hönnuður og einn eigenda Kolofon hönnunarstofu, kynna Vegrúnu, merkingahandbók fyrir ferðamannastaði og friðlýst svæði. Skipulagsleiðbeiningarnar og Vegrún er að finna á vefnum Góðarleiðir.is.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, sérfræðingur hjá Ferðamálastofu, segir frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða en í kjölfar fundarins verður opnað fyrir umsóknir í sjóðinn.
Skráning nauðsynleg. Sjá hér fyrir neðan.
Öll velkomin!