Íslensk hönnun lýsir upp borgina
„Íslensk hönnun“ kynningarátakið lýsir upp höfuðborgina fjórða árið í röð þar sem nýstárleg, fjölbreytileg og litrík íslensk hönnun birtist og tekur yfir ljósaskilti höfuðborgarsvæðisins í heila viku.
Markmiðið átaksins er að auka sýnileika, vitund og virðingu fyrir íslenskri hönnun, en um 40 ólíkar hönnunarvörur og verk birtast á ljósaskiltum um allt höfuðborgarsvæðið í heila viku og sýna gæði og fjölbreytileika íslenskrar hönnunar.
Þetta er átak sem virkjar breiðan hóp hönnuða, framleiðanda og fyrirtækja og eykur slagkraft og sýnir umfang og fjölbreytileika íslenskrar hönnunar, hvort sem um er að ræða fatahönnun, húsgögn, skart, keramik, grafíska hönnun eða hönnun stoðtækja og véla.
Það er Billboard í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að herferðinni í ár en Eyjólfur Pálsson í Epal, átti frumkvæðið að átakinu árið 2021. Átakið hefur vakið mikla athygli meðal almennings, í fjölmiðlum og ánægju meðal þátttakenda í gegnum árin.
Fylgstu með á ferð um borgina í vikunni!