Leikum og lögum - útsaumsnámskeið á Hönnunarsafni Íslands
Leikum og lögum er tveggja daga útsaumsnámskeið sem fer fram dagana 23. og 24. maí kl 14:00-17:00 í Hönnunarsafni Íslands. Adriana Torres, listakona og hönnuður frá Argentínu, leiðir námskeiðið. Hún nam arkitektúr og grafíska hönnun við Háskólann í Buenos Aires.
Adriana hefur sýnt hönnun sína á hátíðum víða á borð við 100% Design í London, Maison & Object í París og Pitti Bimbo á Ítalíu. Hún hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir verk sín og kennt útsaum víða í S-Ameríku, Evrópu og Bandaríkjunum.
Þátttakendur fá silkiprentað efni með mynd af stól og peysu. Adriana leiðir leik þar sem nemendur klippa í efnið, rekja það upp og gera göt í það. Þegar leiknum er lokið er kominn tími til að laga! Adriana kynnir nemendur á námskeiðinu fyrir ýmsum aðferðum til að laga textíl með sköpunargleði að leiðarljósi.
Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum í útsaumi. Nánari upplýsingar og skráning á tix. Verð á námskeiðinu er 15.990 kr.