Málþing um sýningarhönnun
Borgarsögusafn blæs til málþings um sýningahönnun miðvikudaginn 22. maí kl. 15:00-17:00 á Árbæjarsafni. Þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg. Tilefnið er nýliðinn HönnunarMars en þar mátti sjá margar áhugaverðar og vel hannaðar sýningar.
Sýningastjórar og hönnuðir leysa frá skjóðunni og veita gestum innsýn í heim sýningagerðar á minjasöfnum og Árnastofnun. Það er jafnvægislist að hanna sýningar sem halda vel utan um viðkvæma gripi og yfirgripsmikla sögu, jafnvel í friðuðum húsum. Fyrirlesarar fara í saumana á þeim áskorunum og tækifærum sem urðu á vegi þeirra í nýlegum verkefnum og verkefnum í vinnslu.
Málþingið miðar að því að veita gestum dýpri skilning á hönnun sýninga.
Dagskrá:
- Sigríður Sunna Reynisdóttir // Búninga- og leikmyndahönnuður
Vaxtaverkir: Sýning um skólasögu á Árbæjarsafni - Finnur Arnar Arnarsson // Myndlistarmaður og leikmyndahöfundur
Hjartastaður: Grunnsýning Norska hússins í Stykkishólmi - Sigrún Kristjánsdóttir // Sýningastjóri
Ný handritasýning í Eddu – Húsi íslenskunnar - Sara Hjördís Blöndal // Leikmynda- og búningahönnuður
Grunnsýning Byggðasafnsins í Görðum á Akranesi
Málþingsstjóri: Sigríður Sigurjónsdóttir // Forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands
Léttar veitingar í boði
Öll velkomin og frítt inn en nauðsynlegt er að skrá sig hér.