Námskeið fyrir matsmenn – 21. og 22. nóvember 2023
Lögmannafélag Íslands og dómstólasýslan standa fyrir námskeiði fyrir dómkvadda matsmenn í nóvember. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa verið matsmenn eða vilja gefa kost á sér sem matsmenn fyrir dómi á sínu sérsviði, s.s. iðnaðarmönnum, tæknifræðingum, verkfræðingum, arkitektum, læknum, lögfræðingum, sálfræðingum, viðskiptafræðingum og endurskoðendum.
Farið verður yfir hlutverk matsmanna og starf þeirra frá dómkvaðningu og þar til þeir skila matsgerð og/eða mæta fyrir dóm. Þá verður farið yfir ákvæði einkamálalaga sem varða störf matsmanna og samningu matsgerða, undirbúning matsfunda, uppsetningu matsgerða og störf á vettvangi. Í lok síðari námskeiðsdags verður haldið í Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem héraðsdómari mun upplýsa nánar um samskipti dómkvaddra matsmanna við dómstólana og svara spurningum.
Með námskeiðinu fylgja ítarlegar leiðbeiningar fyrir dómkvadda matsmenn sem jafnframt hafa að geyma áhugaverða dóma sem snúa að störfum matsmanna.
Kennari Viðar Lúðvíksson lögmaður hjá Landslögum.
Staður Kennslustofa Lögmannafélags Íslands, Álftamýri 9, 108 Reykjavík og Héraðsdómur Reykjavíkur.
Tími Alls 6 klst. Þriðjudagur 21. nóv. kl. 14.00-17.00 og miðvikudagur 22. nóv. kl. 13.00-16.30.
Verð kr. 50.000,-