Sígildri hönnun hampað á mjólkurfernum
Í tilefni af HönnunarMars, sem í ár breiðir úr sér um höfuðborgarsvæðið dagana 4.-8. maí, hefur Mjólkursamsalan endurvakið klassíska íslenska hönnun á mjólkurfernunum. Blómafernur hönnuðanna Kristínar Þorkelsdóttur, Tryggva T. Tryggvasonar og Stephen Fairbairn eru komnar tímabundið í verslanir og munu þær án efa vekja upp nostalgíutilfinningu hjá mörgum.
Blómafernurnar, skreyttar með myndefni eftir Eggert Pétursson úr bókinni Íslensk flóra með litmyndum, komu upphaflega á markað árið 1985 þar sem Mjólkursamsalan vildi gefa neytendum blóm í tilefni af 50 ára afmæli fyrirtækisins. Kristín Þorkelsdóttir, hannaði útlit fernanna, en hún er margverðlaunaður hönnuður og hlaut meðal annars Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands árið 2020 fyrir ómetanlegt brautryðjendastarf á sviði grafískrar hönnunar á Íslandi. Líkt og með mjólkurfernurnar eru mörg verka hennar hluti af daglegu lífi landsmanna, meðal annars peningaseðlarnir sem hún hannaði ásamt Stephen Fairbairn.
„Grafísk hönnun er fjölbreytt fag sem byggir á túlkun skilaboða hvort heldur tilfinninga, fræðslu, eða staðreynda. Verkefni, bæði stór og smá, verðskulda að hönnuðir leggi sig alla fram um grípandi túlkun. Hroki á ekki heima í hönnun. Ekkert verk er svo smávægilegt að viðhorfið „nógu gott” ráði för og má aldrei heyrast.“ Kristín Þorkelsdóttir, hönnuður