Skapalón tilnefnt til Eddunnar
Skapalón, þættir um hönnun og arkitektúr fyrir ungt fólk, hljóta tilnefningu til Eddunnar sem menningarefni ársins 2023. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og List fyrir alla hlutu styrk úr Barnamenningarsjóði og fengu RÚV og 101 Production til liðs við sig við framleiðslu þáttanna sem voru sýndir á RÚV vorið 2022 og eru aðgengilegir hér og á Listveitu List fyrir alla.
Þáttunum er ætlað að höfða til ungmenna þar sem ljósi er varpað á ólíkar hönnunargreinar með aðgengilegum og áhugaverðum hætti. Þættirnir eru fjórir talsins.
Miðstöðin var til ráðgjafar um innihald þáttana en Logi Pedro, tónlistarmaður og nemi í vöruhönnun í LHÍ var þáttastjórnandi. Meðal viðmælenda má nefna Hafstein Júlíusson og Karitas Sveinsdóttur vöru, og innanhússhönnuði hjá Haf Studio, Arnar Má Jónsson, fatahönnuð, Snæfríð Þorsteins, grafískan hönnuð, Lindu Björg Árnadóttur, fatahönnuð, Óskar Arnórsson, arkitekt, Garðar Eyjólfsson, vöruhönnuð, Sigríði Sigþórsdóttur, arkitekt, Hrefnu Sigurðardóttur og Birtu Rós Brynjólfsdóttur vöruhönnnuði hjá Stúdíó Fléttu og Sigurð Oddsson, grafískan hönnuð.
Hér eru allar tilnefningar til Eddunnar 2023.