Skipulagsdagurinn 2024
Skipulagsdagurinn, árleg ráðstefna Skipulagsstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skipulagsmál, verður haldinn fimmtudaginn 17. október næstkomandi milli kl. 9 -16 á Hilton Nordica á Suðurlandsbraut.
Venju samkvæmt er sjónum beint að því sem efst er á baugi í skipulagsmálum. Dagskrá Skipulagsdagsins að þessu sinni er tvískipt, fyrir hádegi verður kastljósinu beint að þróun landnýtingar og búsetu í dreifbýli þar sem meðal annars er erindi um búsetuþróun og framtíðarhorfum í byggðaþróun ásamt því að heyra af stöðu og þróunar landnýtingar í dreifbýli. Eftir hádegi verður fjallað um húsnæðismál og uppbyggingu í þéttbýli þar sem gæði í skipulagi og uppbyggingu húsnæðis er til umræðu.
Að vanda verður fjölbreyttur hópur frummælenda og sérfræðinga í pallborðsumræðum en nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.
Fagfólk, kjörnir fulltrúar og allt áhugafólki um skipulag er hvatt til að taka daginn frá. Þátttökugjald er 10.000 krónur en innifalin er morgunhressing, hádegisverður og síðdegishressing. Þátttökugjald fyrir nema er 5.000 krónur. Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.
Skráningarsíða fyrir Skipulagsdaginn 2024.
Skipulagsdagurinn verður einnig í beinu streymi.