Skýrsla Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs 2020 er komin út
Skýrsla ársins 2020 hefur nú litið dagsins ljós en þar er farið yfir rekstur Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, innlend sem erlend verkefni og almenna starfssemi. Hægt er að skoða skýrsluna í rafrænu formi hér.
Í skýrslunni er farið yfir rekstur og fjármál. Stiklað á stóru er varða stærstu verkefnin svo sem kynningarmál, HönnunarMars, Hönnunarsjóð, Góðar leiðir og Hönnunarverðlaun Íslands. Sömuleiðis er farið yfir samstarfsverkefni innlend sem erlend og yfir verkefnaáætlun 2021.
Skýrslan er ætluð til upplýsinga og fróðleiks um starfssemi, lykilmálefni og verkefni Miðstöðvarinnar. Studio Studio eru hönnuðir einkennis Miðstöðvarinnar og Steinunn Þorsteinsdóttir sá um uppsetningu.
Ef það vakna einhverjar spurningar má hafa samband við skrifstofu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs á info@honnunarmidstod.is.