Á bakvið vöruna - Steinunn Sigurðardóttir
Í þáttunum Á bakvið vöruna er skyggnst inn í heim íslenskra frumkvöðla og hönnuða sem starfrækja rekstur sinn í skapandi grósku Miðborgarinnar. Fimmta myndbandið í röðinni er helgað Steinunni Sigurðardóttir, sem er án efa áhrifamesti fatahönnuður Íslands. Steinunn ruddi veginn fyrir komandi kynslóðum með alþjóðlegri sýn og handbragði.
Steinunn stundaði nám í París og New York og eftir útskrift frá Parson School of Design starfaði hún í árabil hjá erlendum tískuhúsum á borð við Calvin Klein og La Perla. Frá árinu 2000 hefur Steinunn rekið eigið vörumerki og verslun í verbúðunum á Granda.
Verkefnið Á bakvið við vöruna er röð örmyndbanda í heimildarmyndaformi frá Blóð stúdíó. Í þáttunum er skyggnst inn í heim íslenskra frumkvöðla og hönnuða sem starfrækja rekstur sinn í skapandi grósku Miðborgarinnar.
Íslensk hönnun er ungt fag í stöðugum vexti og henni fylgir gríðarleg tækifæri í atvinnu- og verðmætasköpun. Markmið myndbandanna er að auka sýnileika fagsins og draga fram raunhæfa mynd af einstaklingunum sem þar standa á bak við og hvernig vörur þeirra verða til - allt frá hugmynd, yfir að söluvænni vöru í verslun. Með því að auka þennan sýnileika og samtímis fræða áhorfandann er verið að virkja hann sem mögulegan neytenda og þar með stuðla að aukinni sjálfbærni hönnunar og að uppvexti þess frumkvöðlastarfs innanlands.