Festa opnar fyrir umsóknir að Aðildi - fyrir nýsköpunar - og hönnunarfyrirtæki
Festa hefur sett á stofn Aðildi – fellowship prógram sem felur í sér aðild að Festu í eitt ár fyrir 10 sprota eða nýsköpunarfyrirtæki, hönnunarfyrirtæki eða aðila sem starfa með heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi og leggja áherslu á samfélagsþróun, umhverfismál og sjálfbærni.
Heimurinn er að breytast hratt á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar, heimsfaraldra, hlýnunar jarðar og annarra sjálfbærni áskorana. Þessu fylgja gríðarlega spennandi tækifæri á sviði nýsköpunar og fyrirtækjareksturs, ekki síður en áskoranir sem krefjast öflugs, framsýns og skapandi hugvits sem kallar ekki allt ömmu sína og tengir hiklaust saman geira og sérgreinar til að skynja tíðarandann sem best og finna lausnir á áskorunum.
Aðili fá
- Aðgang að öllum upplýsinga- og tengslafundum Festu, sem eru einungis fyrir aðildarfélög og allt að 8 talsins yfir árið. Á tengslafundum heimsækjum við fyrirtæki á Íslandi sem eru leiðandi á sviði sjálfbærni og samfélagsábyrgðar, rýnum í vegferð þeirra og deilum lausnum, pælingum og nýrri þekkingu.
- Aðgang að Janúarráðstefnu Festu, vinnustofum, námskeiðum og öðrum viðburðum á verði aðildarfélaga.
- Einstaka vegferð sem dýpkar þekkingu og stækkar verkfærakistuna á sviði sjálfbærni, samfélagsábyrgðar, nýsköpunar, alþjóðlegrar þróunar og hringrásarhagkerfisins.
- Einstaka innsýn inn í samspil opinbera geirans og einkageirans þegar kemur að framþróun atvinnulífs á þessum vettvangi. Forskot í heimi þar sem væntingar til samfélagsábyrgðar og sjálfbærni, viðskipta- og fjárfestingatækifærum þeim tengdum eru í örum vexti. Tækifæri til að læra af helstu sérfræðingum hérlendis og erlendis.
- Skírteini í lok tímabilsins sem staðfestir virka þátttöku í verkefninu.
- Festa kynnir ykkur á Janúarráðstefnu sinni 2021, sem er fjölsóttasta sjálfbærniráðstefnan á Íslandi.
- Allt þetta, ykkur að kostnaðarlausu!
Hvernig get ég eða mitt fyrirtæki orðið Aðildi?
- Skrifaðu texta þar sem segir af hverju þig dreymir um að vera Aðildi og hvað þú og þitt fyrirtæki hafa til brunns að bera til að færa okkur hraðar í átt að sjálfbærri nýsköpun og fyrirtækjarekstri.
- Skrifaðu hnitmiðað og ekki meira en 500 orð.
Umsóknarfrestur og von á tíðindum:
- Umsóknarfrestur er 30. nóvember 2020.
- Tilkynnt verður formlega hverjir verða Aðildi 2021 á Janúarráðstefnu Festu 28. janúar 2021.
- Til að sækja um á að senda email á festa@samfelagsabyrgd.is og skýra póstinn “Umsókn um Aðildi”
Hverjir geta sótt um?
- Lítil og örfyrirtæki, sprotar og nýsköpunarfyrirtæki.
- Hönnunarfyrirtæki.
Festa leitar að öflugum einstaklingum sem hugsa á dýptina, útfrá heimspekilegu og siðfræðilegu sjónarhorni um þróunina á Íslandi og í heiminum. Í hvernig samfélagi viljum við búa?
Festa er miðstöð um samfélagsábyrgð eru frjáls félagasamtök með aðsetur í Háskólanum í Reykjavík. Hlutverk Festu er að auka þekkingu á samfélagsábyrgð fyrirtækja, stofnana og hverskyns skipulagsheilda til að tileinka sér samfélagslega ábyrga starfshætti og stuðla að aukinni sjálfbærni.
Festa eykur vitund í samfélaginu og hvetur til samstarfs og aðgerða á þessu sviði. Festa er því brúarsmiður og leiðarljós. Festa tengir saman ólíka aðila; fyrirtæki, sveitafélög og einstaklinga sem vilja vera leiðandi á sviði samfélagsábyrgðar og sjálfbærni.