HönnunarMars á Norðurlöndunum
HönnunarMars og sendiráð Íslands í höfuðborgum Norðurlandanna standa fyrir viðburðum í formi hlaðvarpa, sem tekin voru upp í aðdraganda HönnunarMars hátíðarinnar á Íslandi. Markmiðið er að leiða saman hönnuði frá Íslandi og Norrænu höfuðborganna í áhugavert samtal um hönnun og arkitektúr og þar með skapa hátíðinni erlendan vettvang í samstarfi við sendiráðin og erlenda samstarfsaðila.
Á tímum Covid og lokaðra landamæra er mikilvægt að efla samskipti og samtal þvert á landamæri og um leið vekja athygli erlendis á því sem er að gerast á HönnunarMars og í íslenskri hönnun.
Hlaðvörpin eru á ensku.
Þátttakendur: Sendiráð Íslands í Norðurlöndunum
Kaupmannahöfn
- Kristín Brynja Gunnarsdóttir, menntaður arkitekt og innanhússhönnuður frá Konunglegu dönsku Listaakademíunni.
- Tine Winther Rysgaard er menntaður fatahönnuður úr Konunglegu Dönsku Listaakademíunni.
- Stjórnandi: Ásta Stefánsdóttir er með master í ensku- og leikhúsfræði frá Kaupmannahafnarháskóla.
Stokkhólmur - Vaka Gunnarsdóttir er nýútskrifaður arkitekt með MSc-gráðu frá Konunglega tækniháskólanum í Stokkhólmi og BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands.
- Asli Abdularahman er sænskur listamaður sem notast við frásagnir í verkum sínum.
- Stjórnandi: Gustaf Kjellin er með meistaragráðu í sýningarstjórn frá Stokkhólmsháskóla.
Helsinki
- Päivi Häikiö er grafískur hönnuður og gestakennari við Aalto listaháskólann.
- Kristín Eva Ólafsdóttir hefur unnið á sviði hönnunar í meira en 20 ár og er meðeigandi og listastjóri á hönnunarstofunni Gagarin á Íslandi.
- Stjórnandi er Anni Korkman er verkefnastjóri Hönnunarvikunnar í Helsinki.
Osló
- Hannah Stoveland Blindheim útskrifaðist frá Oslo school of Architecture í janúar 2019 og hefur síðan starfað sem arkitekt við KIMA KIMA architects í Oslo þar sem hún hefur unnið með fjölda verkefna tengt endurnýjun bygginga.
- Vignir Freyr Helgason er íslenskur arkitekt með meistaragráðu frá The Royal Danish Academy of Fine Arts, School of Architecture (2010) og executive master’s degree in Architectural Heritage frá The Oslo School of Architecture and Design (2020).
- Stjórnandi: Pétur Níelsson er menntaður blaðamaður frá NLA University College í Noregi.