Á bakvið vöruna - Hildur Yeoman
Í þáttunum Á bakvið vöruna er skyggnst inn í heim íslenskra frumkvöðla og hönnuða sem starfrækja rekstur sinn í skapandi grósku Miðborgarinnar. Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman lokar seríunni með sínum glitrandi og töfrandi heimi.
Hönnun Yeoman þarf vart að kynna en hún hefur skarað fram í fatahönnunarsenu Íslands undanfarin ár með augngrípandi klæðnaði og stærðarinnar sýningnum. Hún opnaði nýlega glæsilega verslun á Laugavegi 7.
Verkefnið Á bakvið við vöruna er röð örmyndbanda í heimildarmyndaformi frá Blóð stúdíó. Í þáttunum er skyggnst inn í heim íslenskra frumkvöðla og hönnuða sem starfrækja rekstur sinn í skapandi grósku Miðborgarinnar.
Íslensk hönnun er ungt fag í stöðugum vexti og henni fylgir gríðarleg tækifæri í atvinnu- og verðmætasköpun. Markmið myndbandanna er að auka sýnileika fagsins og draga fram raunhæfa mynd af einstaklingunum sem þar standa á bak við og hvernig vörur þeirra verða til - allt frá hugmynd, yfir að söluvænni vöru í verslun. Með því að auka þennan sýnileika og samtímis fræða áhorfandann er verið að virkja hann sem mögulegan neytenda og þar með stuðla að aukinni sjálfbærni hönnunar og að uppvexti þess frumkvöðlastarfs innanlands.